Dökkblá V-hálsprjónapeysa. Létt og mjúk, klassískt snið sem hentar vel bæði við gallabuxur og sparibuxur.
Svartar teygjanlegar gallabuxur með klassísku sniði. Mjúkar og þægilegar, henta vel við flest tilefni. Í mjög góðu ástandi.
Dökkblátt vatterað vesti með hettu og rennilás. Hlýtt og létt, fullkomið sem millilag eða yfir peysu. Vasar með rennilás. Í mjög góðu ástandi.
M/38. Flott snið með víðum skálmum og hráum faldi. Mjúkar og teygjanlegar. Í mjög góðu ástandi.
Hvítar víðar buxur, stærð M. Teygja í mitti með bandi og þægilegt, létt efni. Fullkomnar fyrir sumarið. Í góðu ástandi.
Dökkblár íþróttabolur úr fljótþornandi efni sem hentar vel í ræktina, hlaup og aðra hreyfingu. Sér á printi, annars heill
Svartar leggings úr mjúku bómullarblendi með breiðu teygjumitti og stóru Nike-merki á skálm. Þægilegar til hversdags, gönguferða eða léttrar hreyfingar. Í mjög góðu ástandi.
Hvítur rifflaður bómullarbolur með fallegum blúnduköntum á hlírum og hálsmáli. Mjúkur og þægilegur, hentar vel einn og sér eða undir peysu eða jakka. Í góðu ástandi.
Ljósbláar og þægilegar gallastuttbuxur með teygju og snúru í mitti. Uppbrettar skálmar og klassískt snið. Henta vel fyrir sumarið. Í góðu ástandi.
Ljósbláar wide leg gallabuxur með klassísku sniði og þægilegu teygjuefni. Vinsælt evrópskt merki sem er þekkt fyrir fallega sniðmáta og góð þægindi. Henta vel bæði við strigaskó og sparilegri klæðnað.
Smart ljósar wide leg gallabuxur með háu mitti og þægilegu teygjuefni. Vinsælt evrópskt merki sem er þekkt fyrir góða sniðmáta og þægindi.
Nike joggingbuxur – stærð XS. Ljósgráar og mjúkar joggingbuxur með teygju og snúru í mitti, vösum og stroffi neðst á skálmum. Klassískt snið sem hentar bæði til hversdags og í hreyfingu.
EU 40. Svartar með háu mitti og teygjanlegu efni sem hentar vel í göngur, ræktina, hjólreiðar eða aðra hreyfingu. Í góðu ástandi.
Next axlartaska í svörtu gervileðri.Stillanleg axlaról. Góð stærð fyrir daglega notkun. Í góðu ástandi.
Glænýr með miðanum á. Gylltir þræðir í blúndunni.
Notaður 1 sinni. Eins og nýr, mjög fallegir litir.
Æðisleg blússa eða toppur sem er bundinn utan um mittið. Erfitt að mynda en er mjög klæðilegur. Nýr með miða. Satín áferð.
Notaður einu sinni. Eins og nýr!
Notaður einu sinni á árshátíð. Mjög fallegur plíseraður maxi kjóll, auðvelt að breyta með belti.
Æðislegur maxi kjóll, nýr með miðanum.
Mjög klæðilegt snið á þessum jakka. Góðir vasar.
Glænýjar góðar sumarbuxur enn með miðanum.
Ný með miða stutt golla eða peysa í kremuðum lit. Hægt að opna tölurnar.
Nýjar vínrauðar buxur frá selected. Stærð 40. Eru of síðar á mig (163 cm) og ég nenni ekki að láta stytta þær. Búin að klippa miðann af og þvo þær einu sinni.