Falleg og rómantísk blússa í ljósum gulgrænum lit, áætluð stærð M/L. Blússan er með víðu hálsmáli, stuttum pífuermum, skrautlegum rykkingum og böndum sem hnýtast að framan. Áferðarfallegt, krumpað efni og vítt snið gefa henni létt og bóhemískt yfirbragð. Flott við gallabuxur, hörbuxur eða pils.