Mjúkur og hlýr Bangsímon (Winnie the Pooh) kósýgalli í stærð 98, fyrir um 3 ára. Gulur og rauður flísgalli með rennilás að framan, hettu með Bangsímon-andliti og litlum eyrum. Með gulum ermum og skálmum. Skemmtilegur galli sem hentar bæði sem náttgalli og búningur.